8.6.07

ef þú smælar framan í heiminn..

.. þá smælar heimurinn framan í þig!

þessi ljóðlína Megasar er mér mjög hugleikin þessa dagana. Kannski af því ég umgengst svo margar sálir sem geta enga aðra björg sér veitt en að brosa þegar allar aðrar bjargir eru bannaðar.

..og það gerir svo mikið fyrir okkur brosið.. mest þegar við gefum það öðrum..

bara eitt gott ráð til þín! ef ólundin er að drepa þig, þröngvaðu þér þá til að brosa með því að setja penna þversum upp í þig...
vittu til, eftir smá stund kemur brosið af sjálfu sér... þó ekki sé nema bara út af athæfinu einu saman!

3 comments:

Anonymous said...

:o) Hafðu það gott Ólöf mín..

Anonymous said...

Æ þú ert svo mikill snilli! Ég alveg brosti heilmikið bara við það að lesa þessa færslu :) Hlakka til að sjá þig skvís ;)

Unknown said...

hae elskan, eg hugsa til tin
kv.,
Lara i kenya