11.5.06

hæhó..hæhó..

það er svo undarlega hljótt hérna þar sem ég sit á skrifstofunni og blogga...
ekkert nema rigning og umferðaniður sem berst inn um gluggann...
einstaka sinnum heyri ég prenntarann fara í gang.. fótatak..
og svo aftur þögn...

nudd í úrsérgengnum skrifstofustól heyrist innan af gangi... einstaka glamur í bolla...

stundum muml þegar einhver talar í símann...
talar og talar og talar í símann

síminn hringir bara þegar ég þarf að pissa!

hann hringir alltaf þegar ég fer að pissa... kannski ætti ég að dekka meira vatn...
þá þyrfti ég oftar að pissa og þá myndi síminn kannski hringja oftar...

kannski

ég er sem sagt að vinna á skrifstofu fram í júní..
venjulega hef ég meira að gera... ég var of fljót með verkefnin og var sett á símann... "nei, því miður! ég veit bara ekkert í minn haus... ég er bara hérna... viltu ekki bara hringja aftur á morgun.."

uppgötvaði gleði þess að googla í dag...

mikil gleði... googlaði 3 áratuginn til að finna réttu stemmninguna fyrir árshátíðina okkar á laugardaginn... Stúdentaleikhúsið... bannárin...
þá verður dansað!

kannski ég fari að hætta þessu og haldi áfram að horfa á símann...
hver veit nema hann hringi!

4 comments:

Anonymous said...

þú hefur alltaf verið dugnaðarkona! vona að það gangi betur að fá símann til að hringja með því að horfa á hann, er örugglega þægilegara en að vera mál allan tímann!! og Mr.Google er rosalega góður og traustur vinur, bregst manni sjaldan!
en fyrst þú ert svona dugleg stelpa í vinnunni og ert bara látin hanga fyrir framan tölvuskjáinn þá er skylda að þú kíkir á síðunna okkar (okkar as in ég og þú og allar hinar) og ef þú skilur eftir þig slóð með mail-addressu þá gætiru fengið aðgangs-glaðning í pósti! svo eru líka margar meiriháttar skipurlagningar á hinum ýmsu hittingum og aktivitíum, algjört möst að fylgjast með ;)
www.effessugells.blogspot.com
*klístrað-knús*

Anonymous said...

...ji minn eini, ég er greinilega búin að bræða úr heilanum með öllu þessu prófastandi, þetta átti að vera:
www.effessugells.bloggar.is
my bad :)

OFURINGA said...

Hef heyrt thvi fleygt ad ef madur horfir bara nogu lengi a simann tha mun hann hringja! Hittu okkur a effeessugells.bloggar.is
Thar er gaman!

Anonymous said...

Já þar er sko stuð ;)