9.3.06

kannski

ég er ekki í neinum tengslum við raunveruleikan...
við umheiminn..
það er eins og snúran sem liggur í skjáinn... í gluggann... sé kannski músétin..
...það er einhver útsláttur í henni...
ég næ ekki tengslum við heiminn.. við það sem er að gerast eða ekki að gerast.. við það sem er, en er ekki...
hvað er ef ég veit ekki að það er?
ég stari á skjáinn...
ég var að koma úr prófum og ég skelf og ég stari og ég veit ekki...
ég veit ekki hvort mér gekk vel eða illa..
ég vona
og ég vil...
ég vil mest af öllu að það hafi gengið..
...en ég veit ekki hvort það væri sanngjarnt...
er það sanngjarnt að aðrir verði sárir... að aðrir fái hurðina á nefið á sér...
nei!
ég vil ekki fá vondar fréttir
og svo segja þeir sem allt vita að tíkin mín sé með ofnæmi fyrir nánast öllu fóðri og ég geti lítið gert til að hjálpa henni og þá er eins og ég viti ekkert lengur...
...þá er eins og einhver nuddi hörðu strokleðri við hausinn á mér en ég get ekki þurkað út þessa sáru sterku tilfinningu...
þessa veiku von...
ég vil halda í þessa veiku von!
hún á það besta skilið
og ég á það óraunhæfasta og ævintýralegasta á bak við eyrun...

kannski

5 comments:

Anonymous said...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!

Anonymous said...

Ástar engillinn minn. ég hef fulla trú á þér og þú átt svo sannarlega skilið að komast inn. þú ert snillingur á sviði... alla vega fékstu mig til að fella tár ;) enn... þó að þú komist kannski ekki inn þá er það ekkert vandamál... lífið hefur upp á svo margt að bjóða og hver dagur ber e-h nýtt í skauti sér. keep smiling :D og mundu bara að himinn og jörð farast ekki þó að þú komist ekki inn... ég veit að þú gerir þitt allra besta :) looooove you frænka. kv. Rakel

OFURINGA said...

Hey! Thu ert buin ad fa hurdina klessta framan i thig einu sinni....tha finnst mer thad ekkert nema rettlatt ad hun opnist upp a gatt i thetta sinn! Annad vaeri synd og skomm!
Ganga ther bara ykt vel i naestu umferdum!! Eda brjottu frekar fotlegg kannski...tu tu!

Anonymous said...

audvitad kemmstu inn.
tu leikur onnu betur en litli strakurinn i magnolia!

tu kemst inn
og tu verdur i lhi næsta haust
og eg i hi

lattu mig vita hvernig gengur i næstu umferd!

og mundu... ekki panikka
og annad
tu ert stor... tu tarft ekki ad leika tad

Anonymous said...

"mig" er eg, johanna.