29.12.05

það sem maður getur bullað...

ég held það sé kominn tími á að hætta þessu voli og fara að segja eitthvað af viti... það hefst ekkert með sjálfsvorkunn og aumingjagangi... hananú! Búin að liggja eins og skata öll jólin... sofa af mér jólin... líkaminn gjörsamlega búin að fá nóg... ég held að hendurnar hafi aldrei verið jafn þungar og erfitt að draga þær undan teppinu... ´
en sem sagt, nú er kominn tími til að vakna... hrista af sér slenið... skella sér á atorkuofvirknieinntveirogtíuogdrífumíþví stigið.. hoppa um borð í gerumeitthvaðflugvélina og takast á loft...! heyr heyr... ég nenni ekki svona letihrúgugangi lengur... nú verður ráðist á verkefnalistann, og ég byrja ekki seinna en... núna

ps. ef einhver skildi ekki síðustu færslu... tja.. þá get ég huggað viðkomandi með því að ég skildi hana ekki sjálf... en það er einmitt það sem ég átti við held ég með þessu fangi eigin huga... hummm... alla vega...

2 comments:

Atli Sig said...

Ég ætla bara að benda þér á linkarnir hjá þér eru allir í fokki. Þú linkar á allar blogspot síðurnar sem bogspot t.d og svo er linkurinn á mína síðu bara e-ð rugl! :D

Anonymous said...

hehe.. ólöf mín.. ég held að ég þurfi eitthvað að kíkja á linkana hjá þér.. þeir eru ekki alveg að vikra eins og þeir eiga að gera eins og atli er búinn að benda á.. :) ;)